ágúst 29, 2004

Sushi & cosmo...

Frænkuheimsókn, cosmopolitan á mánudegi og verslunarleiðangur sem endar á Sticks & Sushi er ekki slæmt! Helga frænka kíkti við í svítunni við Sparresholmvej ásamt góðri vinkonu henni Rósu Kaupmannahafnarmær! Elduðum dýrindis fjólubláan kjúkling og tilheyrandi meðlæti. Ekki veit ég hver átti hugmyndina að því að blanda rauðvíni við kjúllann litla en hann varð ekki slæmur fyrir vikið enda í anda þessarar heimsóknar góðrar frænku og vinkvenna:)

Vikan leið hratt, stundataflan orðin klár og við Slebban tilbúnar með stóra bakpoka á bakinu eftir sjóræningjacópíur af öllum bókunum okkar og strætópassann í annarri... í næstu viku verður þó bakpokinn skilinn eftir heima þar sem það verður svokölluð "kynningarvika" haldin í skólanum....THÍ ætti kannski að taka þetta til fyrirmyndar?? öl öl öl... hnje hnje hnje

Enn bætist í svítuna hérna í húsi Guðföðursins á móti sultugerðinni... þegar moi og Eve fórum okkar jómfrúarferð á flugvöllinn og sóttum þriðja svítubúann.... hana Lísu skvísu! hlunkuðumst við heim á leið með farangurinn og við tók sightseeing tour um nýju heimkynnin hennar... ekki slæmt, ekki slæmt.... Guðfaðirinn tók vel á móti henni í glugganum í lille herberginu í svítunni sem er hhuumm.. á annarri hæð! Rétti hann okkur þá ryksugu sem hann sagðist nú bara þurfa að fá lánaða öðru hvoru.... soldið skondin sjón að sjá kallinn í stiganum með ryksugu í annarri og hamar í hinni.... gullmoli þessi maður! Við vorum voða góðar og buðum honum upp á melónur og appelsínur þar sem kallinn var að laga gluggalinginn....

Farin að taka til ....

alt vel ...farvel

Hil&dur

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ sætust... Vá vá vá hvað mig langar að koma í heimsókn til þín maaauuur.... Við þurfuð líka aðeins að skreppa í Kristaníu og villast inn á karlaklósett saman...híhíhí..!! Gaman að sjá hvað það gengur vel hjá þér stelpa... Hurru... viltu senda mér póst á asan@simnet.is... svo ég sjái netfangið þitt... Verðum að byrja að plana hitting í köben maður....

Bæjó og endalaust knús frá okkur öllum... Gummi ætlar svo að hitta hillu frænku þegar hann kemur þarnæstu helgi.... PASSAÐU HANN BARA FYRIR MIG;0)

Ástarkv.
Ásus ninnus.. patti pó og gummi jó

2. september 2004 kl. 09:48  

Skrifa ummæli

<< Home


..að tékka á lime-inu
  • rokkarinn
  • ása
  • ásta
  • katrin
  • arnita
  • guðrún birna
  • waldilein
  • veddarinn
  • lísa
  • erla dögg
  • brynjan
  • svæsi bró
  • ragna sys
  • gummi
  • telma
  • tannálfurinn
  • fjallamjólkin
  • valli
  • kári president of the lesbian
  • raggi
  • árni.hamstur
  • sveninn
  • stebbinn
  • balenoinn
  • tigurinn
  • nett
  • leikir
  • batman
  • mbl
  • kvitta hér