FRÆK/SKÖN/GRATIS
Aldrei er leiðinlegt að fá boð um gott símtal.... heheheh en þetta sló allt út...
Langur og leiðinlegur dagur í skólanum, við loksins á leið heim með líkpokana á bakinu! Baugar niður á bringu...draumur um sturtu og volga sæng efst í huganum... keyptum okkur samt Häagen Dazs ís til að gleðja litlu hjörtun okkar;) Hlunkuðumst út úr strætó...og hlóum að rugli dagsins... þar sem Eva tók nettan pakka.. þar sem sæta skvísan gleymdi linsunum sínum..það kallar á skandala eins og henni er einni lagið;) yndisleg....
Við röltum að hjólunum okkar...og ég vil lýsa því hér með að ég á STELPUhjól, fjólublátt með körfu! en Evan á hið týpíska íslenska fjallahjól sem kallast STRÁKAhjól hér í landi Bauna....allavega.. þá byrjum við að þurrka rigningu dagsins af sætunum, geymum tusku undir sætunum til að bjarga okkur í þessum aðstæðum og undir sætinu hennar Evu beið miði:
FRÆK/SKÖN/GRATIS
TELEFONSEX
til ALLE fyre mell. 16 og 25 år
24215490 / SAM
Þessi miði var skreyttur með brosköllum ... fýluköllum sem þýddi fyrir og eftir símtal.....hehehhehe sem sagt ef stiklað er á stóru...þá var Evu boðið símasex af karlmanni....en ekki mér og ég vil taka það fram að hún er á STRÁKAhjóli og ég á STELPUhjóli.. ef það fór eitthvað fram hjá lesurum þessarar síðu!!!!
Sleep and dream with the angels kæra fólk
Hil&dur